I feel it in the way

Clay Aiken er hin eina sanna Idol-stjarna í mínum eyrum. Ég átti dásamlega kvöldstund. Við hittumst stelpurnar í Öldó-klíkunni. Hittumst heima hjá Hrafnhildi því hún á ekki heimangengt. Hún er nefnilega með litla 9 vikna prinsessu á brjósti. Sara Guðrún er svo falleg. Það eru ekki nema 3 dagar síðan ég lýsti því yfir að mig langi ekki í börn. I stand corrected. Must stop flirting ... must stop flirting ... must stop .... Jenný snillingur sagði mér um daginn að ég skildi bara alltaf vera ólétt útaf estrógeninu. Ég orðaði það við móðursystur mína ljósmóðurina og hún benti mér góðfúslega á að það væri mun minna mál að vera bara á pillunni. Ég var að segja stelpunum það áðan, að ég ætti bara að vera á pillunni útaf estrógeninu. Held samt að það gangi ekki því ef ég byrjaði á pillunni myndi ég bara sofa hjá ... and we would'nt wont that, now would we? Skrítin rökfræði? Engin pilla = nota smokk sem getnaðarvörn. Ég er með latexóþol svo að smokkur = sveppasýking. Sveppasýking er óþægileg svo ég sleppi því frekar að sofa hjá en standa í því rugli. Pilla=enginn smokkur=engin sveppasýking=nenna til að sofa hjá. Niðurstaðan = ef ég tek pilluna þá sef ég hjá. Til að sofa ekki hjá er best að sleppa pillunni. Ætli ég myndi hætt að daðra ef ég fengi það reglulega? Eða myndi daðrið aukast? Daður er ávísun á löngun. Ef daður er í lágmarki er löngun lítil? Ef löngun er fullnægt er þá ekki þörf til að daðra? Hvort kom á undan, gredda eða daður? Eftir því sem lengra líður frá dregur úr löngun (ekki satt?) en daðrið eykst samt, er það ekki? Must stop flirting ... must get laid .... must go to Canada. Veittu því athygli hér að neðan hvað við A erum lík!