Me? A flirt?
Lítill fugl heyrði á samtal herbergisfélaga í vinnuferð. Háttaðir ofan í rúm, ljósin slökkt og nokkrir bjórar í blóðinu. Umræðurnar komnar út á hálan ís.
Hver finnst þér vera mesti daðrarinn í vinnunni?
Þær eru svo margar sem daðra.
Já, en hver er best í því?
Sko, Fríða er mikill daðrari en hún notar það soldið til að ná sínu fram.
Já, er hún þá mesti og besti daðrarinn?
Nei, það segi ég ekki. Hildur er líka mikill daðrari. En það er meira svona ómeðvitað og saklaust. En það þarf svo sem ekkert að ræða þetta því Aðalheiður ber höfuð og herðar yfir allar stelpurnar samanlagt. Það kemst enginn með tærnar þar sem hún hefur hælana.
Nei, það er satt. Hún er svakaleg.