Me? A flirt?
Lítill fugl heyrði á samtal herbergisfélaga í vinnuferð. Háttaðir ofan í rúm, ljósin slökkt og nokkrir bjórar í blóðinu. Umræðurnar komnar út á hálan ís.
Hver finnst þér vera mesti daðrarinn í vinnunni?
Þær eru svo margar sem daðra.
Já, en hver er best í því?
Sko, Fríða er mikill daðrari en hún notar það soldið til að ná sínu fram.
Já, er hún þá mesti og besti daðrarinn?
Nei, það segi ég ekki. Hildur er líka mikill daðrari. En það er meira svona ómeðvitað og saklaust. En það þarf svo sem ekkert að ræða þetta því Aðalheiður ber höfuð og herðar yfir allar stelpurnar samanlagt. Það kemst enginn með tærnar þar sem hún hefur hælana.
Nei, það er satt. Hún er svakaleg.
Il mio specchio
Leiklistarvinnustofan snérist ekki beint um að vinna með fyrirfram tilbúið handrit að leikriti sem einhver kúl gæji eins og Dario Fo var búinn að skrifa og læra textann og eitthvað. Na-a. Við byrjuðum á brjálæðislega stífum hópeflis- og traustsæfingum.
Ein af þessum æfingum var þannig að einn stóð með lokuð augun umkringdur öllum hinum í hópnum. Þessi eini hreyfði sig hægt um íþróttasalinn og hópurinn með. Á einum tímapunkti lét sá "blindi" sig falla og hópurinn greip og lyfti honum upp og bar hann á höndum sér um salinn. Þetta er eitt af því erfiðasta sem ég hef gert á ævinni. Þetta tók svo á mig að treysta öðru fólki svona algerlega fyrir mér að ég fór að gráta við upplifunina. Léttirinn var líka mikill, að vita að ég gæti þetta.
Ein æfingin kallast spegilæfingin. Þá vorum við tvö og tvö saman í handahófskenndum pörum. Við snérum ávalt að hvort öðru og þurftum að halda augnsambandi allan tímann. Sá sem "var hann" hreyfði sig rólega og ákveðið og hinn speglaði hreyfingarnar. Svo skiptum við um hlutverk. Ég speglaði Rafael og Rafael speglaði mig.
Rafael er frá Mexico og hann er mér mjög kær. Það eru átta ár síðan þetta var og við erum enn í góðu og nánu sambandi. MSN er dásamlegt fyrirbæri. Þessi speglaæfing voru fyrstu samskiptin okkar og við stóðum okkur ofsalega vel. Enn í dag kallar hann mig spegilinn sinn, suo specchio.
Dies irae
Leiklistarvinnustofunni lauk með mikilli leiksýningu.
Eftir langt og strangt æfingatímabil var spunaverkið okkar tilbúið. Orkan sem hafði myndast í hópnum skilaði sér út í sýninguna. Við notuðum Capoeira-dansinn í verkið, dansinn sem Domenico hafði kennt okkur og við notað til upphitunar á hverjum degi í 4 vikur, barnagæluna Allir krakkar sem ég hafði sungið inn á band, kínversku þjóðsöguna um litlu stúlkuna með ljóskerið, Opinberunarbókina úr Biblíunni og margt fleira. Tónlist spilaði stórt hlutverk og ég fékk að vera Ofurmenni Nietzsches því ég tók mig svo vel út í þrönga, bláa skíðabúningnum með rauða S-inu framaná.
Lag dagsins er í "sándtrakkinu" úr verkinu okkar. Það er kafli úr Sálumessu Verdis. Dies irae þýðir dagur reiðinnar og er sá hluti verksins er fjallar um það þegar Guð er að dæma mennina á Dómsdegi.
Severus - svikari eða sönn hetja?
Þegar fanginn frá Azkaban hvarf inn í bogahliðið og Harrý var einn eftir grét ég. Ég las kaflann aftur og aftur til að finna smugu, einhverja von um að Siríus væri ekki dáinn. Ég fann svo til með Harrý. Eina mikilvæga manneskjan í lífi hans, vonin, föðurímyndin. Nú var hún horfin, farin á brott, flogin í veg. Horfinn. Svo sárt, svo erfitt. Harrý átti svo bágt, var svo einmana, lítill í hjartanu og smár.
Dumbledore studdi Harrý, veitti honum huggun og styrk á þessum erfiðu tímum en uppfrá þessu atviki var Harrý einn. Hann gat leitað til Dumbledore en það hvíldi svo þung byrði á þessum ungu herðum að hann var einn, þó umkringdur vinum og allir væru boðnir og búnir að hjálpa.
Þess vegna varð ég svo undrandi og reið þegar Severus gekk frá Dumbledore. Ég las þann kafla aftur og aftur og aftur til að skilja. Ég neitaði og neita enn að trúa því að Dumbledore sé í raun dáinn og að Severus sé í liði með Þeim-sem-ekki-má-nefna.
Severus Snape leikur tveimur skjöldum. Hann er í Fönixreglunni og hann er Drápari. Það getur ekki farið saman. Ég held hann sé að þykjast vera Drápari til að njósna um þá, til að hjálpa þeim í Fönixreglunni. Eða kannski er það bara einfeldni mín og von um að allt endi vel að ég held þetta? Dumbledore kemur í það minnsta aftur og síðan hvenær klikka bölvanir hjá Snape? Síðan hvenær klikkar dauðabölvunin? Mótsögn? Jebb.
Gárungarnir segja að tvær af aðalpersónunum lifi lokabardagann ekki af. Spádómurinn segir að bara annar megi lifa, Harrý eða Voldemort. Síríus er dáinn og er virðist líka Dumbledore. Hvern ætlar Rowling þá að drepa? Hagrid? Mrs.Weesley? Hermionie og Ron?
Hönk Vikunnar
*andvarp* -
myndir sega meira en mörg orð svo ég held ég láti þær mest um að tala núna.
Þetta byrjaði allt þegar hann bjargaði mér úr sjónum eftir að ég fékk krampa í vinstri kálfan þarna vorið '90. Kom hlaupandi í flæðamálinu í rauðu sundbuxunum sínum með stóra flotholtið sitt og stakk sér til sunds ó svo þokkafullt. Án þess að á væri bætandi missti ég andann þegar ég sá hann. Þarna var hann kominn, karlmaður drauma minni.
Eftir tveggja daga legu á sjúkrahúsi hafði ég jafnað mig í kálfanum en ekki hjartanum. Ég varð að sjá hann aftur.
Þegar ég gekk út af spítalanum sá ég auglýsingu á tilkynningatöflunni. Þarna var hann. Í svörtum leðurjakka og sundskýlu í stíl. Oh, hann var þá söngvari líka að fara að halda tónleika. Ég tók gleði mína á ný.
Tónleikarnir voru æði ..... en það sem tók við eftir tónleikana var enn betra. Ég beið í klukkutíma við bakdyrnar til að hitta riddarann minn og þegar hann kom út og ég
bað hann um eiginhandarárinun mundi hann eftir mér. Sagðist hafa reynt að finna mig en ekki tekist. Hann var svo glaður að ég skildi hafa fundið hann og sagði með sinni djúpu og kynþokkafullu röddu: common baby, jump in my car, I wana take you home!
Við áttum marga yndislega daga og nætur saman. Svona á milli þess sem hann var að bjarga fólki úr sjónum eða leysa dularfull sakamál.
Ég elska hann og hann elskar dýr, sérstaklega litla hvolpa sem þarf að bjarga!

Dökkhærður, hávaxinn og myndarlegur ....
... with a catch. Rétti upp hendi sú sem finnst Owen Willson kynþokkafullur.
Þegar ég var lítil áttum við Superman III á myndbandsspólu. Fyrir ykkur sem hafið ekki séð hana þá leikur Richard Pryor klaufann sem lendir í skondnum atvikum og vondi kallinn er ógeðslegar ríkur viðskiptajöfur sem er að setja saman risastóra tölvu sem Pryor á að forrita.
Christofer Reeves var myndarlegur maður en mér fannast Superman aldrei mjög sexý ... nema þegar hann kemst í nálægð við Kryptonítið og verður vondur. Hárið dökknar og síkkar, hann fær þriggja daga skeggbrodda, drekkur brennivín, verður ruddalegur og úfinn og sexý. Moving on.
Spiderman er svakaleg hetja. Hann sveiflar sér á milli háhýsa á Manhattan líkt og Tarsan á milli trjáa. Ég fór að sjá Köngulóarmanninn 3 um daginn. Spædý alltaf í sálarflæku sökum Mary Jane og í vanda með vin sinn Harry. Thomas Haden Church vondi kallinn sem var í raun ekki vondur. Aðalillmennið var efni utan úr geimnum.
Mjög langdregin mynd og Toby Maguire ekki neitt rosalega heitur nnn nema þegar svarta eftur utan úr geimnum heltekur hann. Þá verður búningurinn svartur, Spidey hættir að vera ofurgóður og verðru frekar röff töff kaldur gæji sem hjálpar sjálfum sér soldið. Hárið á Peter verður síðara, dekkra, hann fær skeggrót, verður ögrandi og soldið sjálfseyðandi. Bara soldið Sexy. And we are walking, we're walking.
Batman begins. Christian Bale. Hér eru orð óþörf í raun. Blaki á bágt, hann er einmana, lítill í hjartanu og sár. Hann er hefnigjarn, reiður, dimmur og kaldhæðinn. Hann er dökkhærður, hávaxinn og óhugnalega myndarlegur með þokkalegt sexapíl. Grab your binoculars, come follow me.
Til að toppa þetta allt saman var James Nesbit sem Tommy Murphy í sjónvarpinu í gær. Ummpphhh, ummpphh, ummpphh! Hann lokaði hringnum. Með bringuhár niður að nafla, þriggja daga skeggbodda utan um skeifuskeggið, úfinn, ótannburstaður, drápseðlið farið að segja til sín, búinn að berja einn til dauða með berum höndum, skjóta aðra tvo, harðu nagli en svo meir að mig langaði bara að halda utan um hann og segja honum að þetta yrði allt í lagi.
Ruglaðir, dökkhærðir, soldið myrkir karakterar, ekki góðir en ekki alslæmir, soldið eins og viltir rakkar. Þá er ég algerlega heilluð. Af hverju verð ég alltaf skotin í stráknum sem veldur manni ástarsorg? Held til dæmis að eina ástæðan fyrir því að Denis muni alltaf eiga smá hluta í mér sé sú að hann olli mér hjartasári sem skildi eftir sig ör. Og ég sæki í það aftur og aftur að leyfa honum að rífa ofanaf sárinu.
Striptrease
Það kom til mín maður í dag. Ungur og mjög myndarlegur. Hann setti filmur í eldhúsgluggana hjá mér. Nú get ég áhyggju- og gardínulaus gengið nakin um íbúðina og gert það sem mér sýnist án þess að gömlu konurnar og barnabörn þeirra sem leika í garðinum sjái til mín. Spennandi!
Einn tveir Selfoss
Verð að hætta þessu netrápi. Þegar maður er farinn að skoða loftmyndir af Selfossbæ er nóg komið. Þær eru samt skemmtilegar þessar myndir sem Kjartan Pétur Sigurðsson tók árið 2005. Glöggir skoðendur og Selfossþekkjendur sjá fljótt að þær eru ekki nýjar í það minnsta.
She told me that her dad was loaded
I said: in that case I'll have a rum and Coca-Cola!
William Shatner er hinn endanlegi ofuralheimstöffari. Captain James T. Krik á geimskipinu Enterprise. Klikkaði lögfræðingur Denny Crane á lögfræðistofunni Crane, Pool and Schmidt í Boston.
Skemmtilegt tilviljun í einum þættinum af Boston Legal þar sem Shatn
er, Rene Auberjonois og
Armin Shimerman komu allir fram. Allir hafa þeir leikir í StarTrek. Reyndar var Shatner í NG en Auberjonois og Shimerman í DS9. Þar léku þeir mikla andstæðinga. Auberjonois var formbreytirinn og lögregluforinginn Odo og Stevens var eyrnastóri ferenginn og bareigandinn Quark. Þeir elduðu oft grátt silfur saman. Oh, those were the days.

Þú ert nú meiri tíkin ...
Af hverju fær maður ofnæmi?
Það var ekki mjög skynsamlegt að hitta stelpurnar á Café Flóru í Grasagarðinum í Reykjavík í dag. Andlega, félagslega mjög skynsamlegt. Ekki líkamlega. Ég er með frjóofnæmi. Eins og vel upp alinni stúlku sæmir og skynsamri (sem ég er mjög) tók ég ofnæmislyfin mín í morgun, eina pillu af Clarytíni sem inniheldur virka efnið Loratadín sem er notað við ofnæmiseinkennum í augum og nefi. Taflan gerði ekki nægilega mikið gagn. Ég fékk kláða í nefið, bólgur í slímhúðina, nefrennsli, kláða í augun og á endanum blóðnasir.
Eftir heimildaöflun um ofnæmislyf á doctor.is hef ég komist að því að það er betra fyrir mig að taka ofnæmislyf sem innihalda virka efnið cetirizin, til dæmis annað af tveimur lyfjum sem Actavis framleiðir, Histal eða Histasín. Actavis framleiðir ciprofloxacin líka, í miklu magni. Af hverju ætli það sé? (Ég veit það sko, bara að forvitnast um hvort þið vitið það ;o)) Betra að taka cetrizin en loratadin því það er notað við ofnæmisbólgum í nefi, útbrotum og kláða.
Talandi um ofnmæmi. Í ofnæmi birtast óæskileg, hvimleið eða jafnvel hættuleg viðbrögð þess kerfis líkamans sem venjulega ver okkur gegn sýkingum, það er ónæmiskerfisins. Ónæmiskerfi líkamans er mjög flókið kerfi sem við hvorki þekkjum né skiljum ennþá nema að hluta til. Hlutverk ónæmiskerfisins er einkum að verja líkamann fyrir ýmsum utanaðkomandi efnum, m.a. sýklum. Framandi efni, t.d. á sýklum, geta verið svokallaðir mótefnavakar sem setja í gang myndun mótefna í ónæmiskerfinu. Þessi mótefni eru mjög sértæk gagnvart ákveðnum mótefnavaka og eru mikilvægur þáttur í varnarkerfi líkamans.
Ónæmiskerfið getur stundum orðið of virkt gagnvart vissum efnum. Snerting við þau veldur þá heiftarlegri svörun sem við köllum ofnæmi. Ofnæmisviðbrögð geta verið bráð eða langdregin.

Í bráðaviðbrögðum er atburðarásin sú að sá sem fyrir því verður hefur myndað mótefni af flokki sem kallast immúnóglóbúlín E, einhvern tíma þegar viðkomandi komst fyrst í tæri við það sem hann hefur ofnæmi fyrir. Þessi immúnóglóbúlín E hafa þann sérstaka eiginleika að festa sig við frumur sem heita mastfrumur og er að finna víðs vegar rétt undir slímhúðum líkamans. Mastfrumurnar eru nokkurs konar forðabúr þeirra efna sem beinlínis valda ofnæmiseinkennum, svo sem nefrennsli. Þegar sá sem hefur ofnæmi til dæmis fyrir frjókornum andar þeim að sér losna efni úr þeim og síast mjög fljótt að mastfrumunum þar sem immúnóglóbúlín E situr í
viðbragðsstöðu og skilar þeim boðum til mastfrumunnar að losa innihald sitt. Þetta tekur um það bil 20 mínútur.
Í langdregnu ofnæmi er oftast um að ræða svörun annars hluta ónæmiskerfisins, svokallaðra T-eitilfrumna. Þær gefa ekki frá sér mótefni en framleiða ýmis efni sem valda bólgueinkennum. Þess háttar ofnæmi er algengt til dæmis gegn málmum, þegar fólk fær bólguskellur og útbrot undan skartgripum og þess háttar.
Ofnæmi getur jafnvel myndast gegn efnum í sjálfum líkamanum, sjálfsofnæmi. Sjálfsofnæmi er talið geta myndast á ýmsa vegu. Til dæmis geta slys eða áverkar orðið til þess að efni úr frumum eða líkamshólfum eins og auganu komast út í blóðið. Sum af þessum efnum geta þá verkað sem mótefnavakar og afleiðingin er sjálfsofnæmi. Einnig geta framandi efni eins og sum lyf eða málmar tengst próteinum í líkamanum sem breytast þá í mótefnavaka. Ennfremur geta mótefni gegn efni í sýkli ráðist á prótein líkamans vegna þess að það er svo líkt sýkilefninu.
Allt getur þetta leitt til þess að ónæmiskerfið myndar mótefni gegn eigin efnum líkamans og afleiðingin er skemmdir á vefjum. Eða taugum!
viðbragðsstöðu og skilar þeim boðum til mastfrumunnar að losa innihald sitt. Þetta tekur um það bil 20 mínútur.
Þessi fróðleikur er í boði Vísndavefjarins og Wikipedia
And wait for the ricochet
Tveir mjög sterkir umsækjendur um stöðuna Lags dagsins í dag sem ómögulegt var að velja á milli: mér finnst bara bæði betra.
Skilur einhver síðustu orðin sem Björk segir í laginu? Á öllum textasíðum segir *** Icelandic part *** en ég næ hvorki haus né sporði af þessu breimi í konunni.
Að horfa á myndband er góð skemmtun. Að drekka kók er svalandi. Að drekka mjög kalt kók úr lítilli glerflösku á myndbandaleigu er reglulega svalandi og skemmtilegt, sérstaklega ef afgreiðslumaðurinn er hressandi.
Netpróf 7.02
Ó, please, tell me something I don't know!!!
| There's a 47% Chance That You Need Therapy |
![]() |
I just want you to know
I still need you ... i still care about you ... i still fell you ... I've tried to fight it, can't deny it, you don't even know ... that i still love you!
Neon on my naked skin
Ég fæ í hnén þegar ég hlusta á þetta lag. Set stút á munninn og píri augun í rosa fíling. Þetta er svo mikil snilld. Big in Japan, things are easy when your big in Japan.
I am swimming in an ocean all alone
Sástu síðasta þáttinn í Lost? ... and you still wonder if we've made a big mistake!
Kenningin er sú að ég laðist frekar að óþekka stráknum sem fer illa með stelpuna. Ekki í þessu tilviki. Ég hef alltaf verið hrifnari af Dr.Jake en Sawyer.
Núna er hann eins og blautur, viltur og svangur hvolpur sem þarfnast þess að einhver knúsi hann og hugsi um hann, láti honum líða vel og finnast hann ekki vera einn í heiminum. Ég hef ekkert mótstöðuafl gagnvart þessum bláu varnarlausu augum, fullum af tárum. Ég skal halda utanum þig Jake og segja þér að allt verði í lagi.
I try to go on like i never knew you
I'm awake but my world is have asleep
I pray for this hart to be unbroken but
without you all I'm going to be is incomplet.
Netpróf 7.01
Loksins prófniðurstaða sem ég er fullkomlega ánægð með ... jeijj!
| You Are Kermit |
![]() |
You know you've got the power ...
Fjórar vinkonur sitja á útikaffihúsi í borginni. Sólin er heit, kókið er kalt. Karlmaður kemur hlaupandi með son sinn á herðunum og íspinna í munninum. Hún hlær örlítið hærra en tilefni er til, hann þekkir hláturinn og lítur til hennar. Þau heilsast yfirborðskennt. Hann hefur breyst. Gránað í vöngum, kominn með vaxtarlag gifts, fimm barna heimilisföður. Hún hefur breyst líka, hárið styttra, kílóin fleiri, börnin engin. Hann gengur í burtu með fjölskyldunni, hún situr eftir með vinkonunum. Þau horfast í augu einu sinni enn, kveðjast í hljóði.
... to make me weak inside.
Du hast mich gefragt und ich hab nichts gesagt
Það var snemma í júlí árið 1999 sem ég fór í bíó með Big Siss, sal 1 í Álfabakka. Sjaldan þegjum við út heila mynd og erum orðlausar alla leið út í bíl en þarna gerðist eitthvað. Ég held meira að segja að við höfum ekki sagt orð meirihluta leiðarinnar heim á Hagamel.
Ég átti eftir að sjá myndina 5 sinnum í viðbót í kvikmyndahúsi, einu sinni enn á ensku, fjórum sinnum á ítölsku.
Fyrsta geislaplatan sem ég keypti þegar ég kom til Bologna í ágúst þetta ár var "soundtrakkið" úr myndinni. Lag dagsins er á plötunni, en ég minnist þess ekki að það sé í myndinni. Nema kannski þegar Neo eltir hvítu kanínuna og hittir Trinity. Ég ælta að gá.
Ég hef séð myndina svona 63 sinnum síðan og alltaf er hún jafn brillíant.
You've had a lot of dick, I've had a lot of time
Dear Chasey Lane, I wrote to explain I'm your biggest fan. I just
wanted to ask could I eat your ass? You've had a lotta dick Chasey
but you ain't had mine. Would you fuck me for blow?