Leti?

Nei, engin leti hér á bæ, bara nóg að gera. Var í dásamlegri grillpylsuafmælisveislu í gær. Bríet vinkona mín átti afmæli og Kristín Birna bauð okkur Sveinsínum í grillpylsuveislu. Frábært! Lag dagsins er í boði Rannveigar vinkonu minnar og vinnufélaga og stærðfræðikennara. Justin did soooooo bring sexy back!!!

wise men fighting over me?

Já, þið hélduð að ég myndi hætta að bulla og setja hér ömurlega tónlist frá níunda áratugnum og tala um nöngu gleymda tónlistarmenn þegar ég væri búin að sigra í keppninni? Hahahah ... þið höfðuð rangt fyrir ykkur! Nik Kershaw var ógili (óður til systur minnar) sætur þegar hann var upp á sitt besta 1984. Lögin hans voru brill eins og heyra má á lagi dagsins hér til hliðar. Textarnir kannski ekki jafn mikið brill: "i got plans for us nights in the scullery and days instead of me i only know what to discuss of for anything but light wise men fighting over you" Þetta er eitt erindið úr laginu The Riddle sem má hlusta á með því að spila lag dagsins í dag, 29.maí 2007. Og það gefur tóninn fyrir allt hitt, með öllu óskiljanlegt bull og þvæla. Hvet alla til að skoða síðuna hans Niks, þá sérstaklga undirsíðuna sem kallast Drum Talk. Maðurinn er ógili (aftur óður til systu) fyndinn. Svo er í raun ekki nema hálf stemmingin að hlusta bara á lagði. Ef þú hefur tíma skaltu horfa á það! Oh, hann er, úpps nei, var svo sætur! Eitt ummhhhfff.

Bjór og bjór

Ég veit fátt ömurlegra en þegar stjórnendur í amerískum samtalsþáttum taka upp á því að fá dýr í heimsókn. Jay Lenno gerir þetta og nú hefur tvífari minn Rachel Ray tekið upp á þessum hryllingi líka. Jeökk! Annars er nóg að gera á vesturvígstöðvunum. Er að drukkna í námsmati, ji það er eitt sem ég á ekki eftir að sakna úr kennslunni. Eftir 7 sólarhringa ... 168 klukkustundir ... verð ég í Edinborg í Skotlandi í hrikalega góðum félagsskap að drekka svaðalega svalandi bjór á huggulegri knæpu!

Hvað eiga Muse og Britney Spears sameiginlegt?

Flestir myndu segja ekki neitt. Sem er eiginlega rétt. Nema ... lag dagsins, sem eru reyndar tvö. Hvað finnst þér um Britney? Gefðu þér góðan tíma, hugsaðu þig vel um. Ég er yfirlýst poppmella Íslands og viðurkenni þar af leiðandi að mér finnst mörg lögin sem hún flytur vera skemmtileg. Reynar ekki "Do something", en það er aukaatriði. Sem manneskju þykir mér ekki mikið til hennar koma. Mér finnst hún vera kjánaleg, hégómagjörn, einföld, fölsk, tilbúin söluvara, án raungilda, haldin sjálfseyðingarhvöt og ég vorkenni henni. Britney er með ríkustu konum í heiminum, hún er mjög fræg og gæti notað bæði peningana og frægðina til að gera góða hluti, fetað í fótspor Angelinu Jolie, Leonardo Di Caprio, George Clooney og margra annarra. En hvað gerir hún? Kaupir eina í hverjum lit ef hú sér sæta tösku úr krókódílaleðri, fer nærbuxnalaus á djammið og lætur taka myndir upp undir pilsið sitt til að fá umtal, drekkur brennivín, notar eiturlyf og gerir mynbönd við lögin sín sem mætti auðveldlega flokka sem klám. Heitustu aðdáendur hennar eru 10-13 ára stelpur! Ef maður þekkir ekki lögin sem Britney flytur áttar maður sig ekki á vísuninni í "Supermassive Black Hole" með Muse. Þess vegna verður þú að hlusta fyrst á lagið hennar, áður en þú hlustar á Muse. Fyrstu 15-20 sekúndurnar ættu að duga, þú þarf ekki að kveljast lengur en það. Svo hlustarðu á Muse og hugsar um Britney um leið og þú pælir í textanum.

And the winner is ....

Keppnistímabilinu er ekki formlega lokið en ég held mér sé óhætt að lýsa sjálfa mig sigurvegara í keppninni við sjálfa mig. Mér hefur, með elju og krafti, mikilli ákveðni og sannfæringu, tekist að standast áskorunina um að setja fjörutíu eða fleiri færslur á þetta blogg í maí-mánuði. Hvað næst?

Hönk vikunnar

Þetta byrjaði allt saman þegar ég var á "stráka"-tímabilinu. Alltaf einhvers staðar úti að veltast með strákunum. Teikandi bíla, stökkvandi á milli húsþaka, prílandi uppí tré og yfir girðingar og skjólveggi, eltandi hrossin útí haga og ríðandi berbakt ef við náðum einhverjum. Alltaf fjör og alltaf marblettir, skrámur og kúlur, jafnvel glóðarauga við og við. Eitt sinnið vorum við að teika. Færið var rosalega gott og þar sem þetta var snemma vetrar voru bílstjórarnir ekki farnir að vara sig á okkur. Ég var svo óheppin að ég missti takið og kútveltist útfyrir veg og lenti illa á stórum steini og braut á mér ökklann. Það dugði ekkert annað en að bruna með mig á spítalan þar sem tók á móti mér þetta líka yfirmáta myndarlegu læknir, Voffi. Oh. Ég féll kylliflöt fyrir honum strax. Hann var svo heillandi með þessi brúnu hvolpaaugu sem horfðu á mig seiðandi. Ég var sem dáleidd frá fystu tíð. Við höfum verið óaðskiljanleg síðan. Hann gat meira að segja ekki verið í burtu frá mér árið sem ég var á Ítalíu svo hann keypti rómantískt afdrep við vatn til að við gætum átt góðar stundir saman. Árin hafa sett mark sitt á hann en hann ber þau vel. Eftir því sem gráu hárunum og broshrukkunum fjölgar elska ég hann meira.

Góðan dag

Heij do allíjúppa! Ósk er góð. Ósk á lag dagsins. Ég vil samt tileinka það konunni sem verður jarðsett í dag.

Lag dagsins

Hrafnhildur vinkona mín, vinnufélagi og stærðfræðikennari valdi lag dagsins að þessu sinni. Lagið heitir As og er eftir diskótöffarann Stevie Wonder en er hér í flutningi aðaltöffara níunda áratugarins George Michael og r&b píunnar Mary J.Blige. Njótið!

Krækjur

Ég er alger netnörri, veltist um á vefnum daginn út og inn, les fréttir, blogg, slúður, hlusta á tónlist, skoða myndir og vídeó, sendi tölvupóst og athuga aftur og aftur og aftur hvort ég hafi fengið tölvubréf. "Þó svo að póstkassinn sé alltaf tómur ertu örugglega til. Það geturðu sannað, með löggiltum pappírum, skilvísum afborgunum af græjunum og andardrættinum fyrir framan spegilinn." Einar Már Guðmundsson Á netinu er hægt að lesa misgáfulega hluti og misskemmtilega. Mér finnst Gunni "síðuhaldari" ógeðslega fyndinn. Mér finnst "Fánýtt má um allt sem öngvu máli ..." bryllíjant. Hugmyndauðgi og sköpunargleði fólk er dásamleg. Tommi Þórodds er viðbjóðslega kaldhæðinn og það er ekki tilgangslaust að lesa um Tilgangsleysi allra hluta.

Það var og

Um daginn fór ég út að borða með góðum vinahópi. Þeim er annt um mig og velferð mína, svo annt í raun að nú hafa þessi vinir ákveðið að senda mig á blind stefnumót. Já, fleiri en eitt eru í deiglunni. Ég er til en óttast að þau muni gugna á skipulaginu. Tíminn mun leiða það í ljós. Í tilefni þessara yfirvofandi blindu stefnumóta hef ég sett saman litla, ómerkilega og algerlega án ábyrgðar könnun um hvar/hvernig sé líklegast að hitta mögulega sjénsa. ~~~ Niðurstöður síðustu könnunar voru hvorki upplífgandi né hvetjandi fyrir mig sem skrifara þeirra pistla sem hér birtast (mjög reglulega). Kemurðu oft hingað? Já - 2 Nei - 2

Þingvallasáttmálinn

Ég var að lesa stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þar er talað um allt milli himins og jarðar en nokkrir hlutir stóðu uppúr að þvi er mér finnst. Rosalega mikil áhersla á umhverfismál og ég held að Þórunn Sveinbjarnadóttir, hinn nýji umhverfisráðherra, eigi eftir að standa sig mjög vel í að vinna að þessum markmiðum. - Ríkisstjórnin stefnir að því að ná víðtækri sátt um verndun verðmætra náttúrusvæða landsins og gera skýra áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. - Vatnasviði Jökulsár á Fjöllum verði bætt við Vatnajökulsþjóðgarðinn og tryggt að ekki verði snert við Langasjó í virkjanaskyni. Stækkun friðlandsins í Þjórsárverum verði tryggð þannig að það nái yfir hið sérstaka votlendi veranna. - Íslendingar eiga að stefna að því að taka forystu í baráttunni gegn mengun hafsins og alþjóðlegu starfi til að bregðast við loftslagsbreytingum. Áhugaverð setningin um trúfélögin og samvistir samkynhneigðra. Ég veit ekki hver afstaða kirkjumálaráðherra er til þessa máls en ég velti því fyrir mér hvort það breyti einhverju að trúfélög hafi heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra ef viljinn er ekki til staðar í umræddu trúfélagi. - Trúfélögum verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Eins og kom berlega í ljós á síðasta kirkjuþingi eru menn innan kirkjunnar sem hafa engann áhuga á að leggja blessun sína yfir samvistir samkynhneigðra, eða bara samkynhneigða yfir höfuð. Á meðan enn eru karlar innan kirkjunnar með skoðanir aftan úr grárri forneskju breytist viðhorf kirkjunnar sem stofnunar ekki, hvort sem Alþingi veitir heimild til þess að staðfesta samvisti eður ei. Held það sé brýnna að vinna að aðskilnaði ríkis og kirkju, þó það sé flóknara en heilaskurðaðgerð. Ég vona innilega að Guðlaugur Þór sé nægilega heilsteyptur, skynsamur og klár til að taka til í heilbrigðisráðuneytinu og bæta og auka þjónustuna. Sem viðskiptavinur þessa fyrirtækis get ég sagt að þjónustan er ekki nógu góð og starfsfólkið ræður ekki við alla þessa viðskiptavini. - Kostnaðargreina á heilbrigðisþjónustuna og taka upp blandaða fjármögnun á heilbrigðisstofnunum þar sem fjármagn fylgir sjúklingum. Þannig fái heilbrigðisstofnanir fjármagn í samræmi við þörf og fjölda verka.

Marty Casey - Trees

Magni hvað? Rockstar: INXS var svo milljón sinnum betri en þetta supernóva-kjaftæði. Skemmtilegri hljómsveit að leita að söngvara, betri lög, meiri gæði í söngvarahópnum. Skemmtilegra sjónvarpsefni á alla kannta, frumlegra og ferskara. Marty var svo frábær en JD svo sexy.

Af hverju bloggarðu?

"It's not in the way you hold me, it's not way you say you care, it's not in the way you've been treating my friends, it's not in the way that you stayed till the end, it's not in the way you look or the things that you say that you'll do." Ég veit það ekki. Af hverju ekki? Hvers vegna bloggar fólk yfirleitt? Ég held að fólk bloggi til að tjá sig. Hafa skoðun á hlutunum, segja frá því sem drífur á daga þess, deila upplýsingum. "Ég blogga til gleyma" eða svoleiðis eða þannig sko. Ég er aðallega í keppni við sjálfa mig þessa dagana en af hverju byrjaði ég nú á þessu? Mér finnst athygli ekkert leiðinleg en hún er ekki aðalatriðið. Í allri hreinskilni veit ég ekki af hverju ég er að þessu. Fá útrás fyrir tjáningarþörfina? Ég hef skoðun á voða mörgu en mér finnst ekkert gaman að tjá hana nema það eigi sér stað einhver samræða ... sem gerist ekki hér ;o) Auðvitað vonar maður alltaf að einhver lesi það sem maður skrifar og ég velti því fyrir mér hvað fólki finnist um það sem ég skrifa. Ég er minn versti og besti gagnrýnandi, ég er leiðinlegi ritstjórinn. Ég hugsa um það sem ég skrifa, spái í hvort ég sé nógu sniðug, nógu uppátækjasöm, hnyttin, skemmtileg, rökföst, spennandi, hvernig efnistökin séu, hvort það sé nógu frumlegt, áhugavert. Ég reyni að hlusta ekki of mikið á þennan ritstjóra sem býr í hausnum á mér en maður kemst ekki hjá því að heyra hvað hann hefur að segja. Ætli trikkið sé ekki að taka ekki of mikið mark á honum. Ég er ekki mikið að segja fólki frá þessu blogg-veseni á mér. Mig grunar að það sé útaf ritstjóranum. Ef fólk les þetta ekki þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað því finnst um það sem ég skrifa. Á móti kemur spurningin af hverju er ég að skrifa þetta ef enginn les það? Af hverju blogga ég? Hvað vil ég fá útúr því að blogga? Mér finnst gaman að skrifa texta en er ekki í mikilli æfingu og þetta er góð leið til æfa mig. Held ég. Mér finnst internetið skemmtilegt og allt sem er hægt að finna á netinu og það sem hægt er að gera með svona miðil eins og blogg er spennandi. Mér finnst gaman að velja lag dagsins og hönk vikunnar. Þegar öllu er á botninn hvoltf kemur sannleikurinn í ljós. Mér finnst gaman þegar fólki finnst gaman og ég fæ mest útúr því að vita að fólk skoðar það sem ég er að gera og hefur gaman að því, þó ekki væri nema brosi út í annað. Þess vegna er skemmtilegast að fá athugasemdir á bloggið sitt. Finnst það ekki öllum? Það er gaman að vita að fólk fylgist með manni og hefur áhuga á manni. Þess vegna blogga ég. Af hverju lest þú blogg?

National lampoons vacation

"Here's the leash sir,I'm going back to get the rest of the cacass of the road"

15 dagar til Edinborgar

Ég sá það á tilkynningatöflunni í vinnunni í dag að við erum að fara til Edinborgar eftir 15 daga. Það eru allir orðnir ofsalega spenntir og farnir að hlakka mikið til. Þetta verður brilljant ferð. Falleg borg, góður bjór, æðislegir ferðafélaga og frábær herbergisfélagi. Halldóra er dásamleg og við eigum eftir að hlægja svo ógeðslega mikið og fíflast og láta öllum illum látum að ég verð í marga daga að jafna mig þegar ég kem heim.

Spin Doctors-Two Princes

1991 - Rúnturinn á Selfossi - Planið fyrir framan Pulsuvagninn, hjá Tryggvaskála - Góða helgi!

Hönk vikunnar

Ég hef þekkt Garðar frá því við vorum saman í Nam þarna um árið. Hann er svaka hetja, bjargaði lífi mínu oftar en einu sinni. En ég þarf að segja ykkur ljótan sannleikann. Hann hefur ekki alltaf verið svona sætur. Þannig var þetta að einn þriðjudagsmorguninn þarna í Nam komu einhverjir Víetkong-klikkhausar með rörasprengju og spengdu hana rétt fyrir utan tjaldið okkar Garðars. Til að bjarga mér kastaði Garðar sér fyrir mig og fékk sprengjubrot í andlitið. Það var svo ekki fyrr en 19 mánuðum og 27 lýtaaðgerðum síðar sem Garðar var orðinn nánaðst heill heilsu á ný. Sprengjubrotin fóru svo illa með hann að það þyrfti að endurbyggja kjálkann á honum frá grunni og færa til húð af bakinu á honum í andlitið. En læknarnir unnu frábært björgunarstarf og gerðu sitt besta, sem er ef þið spyrjið mig bara helv.gott. Finnst ykkur það ekki?

Könnun vikunnar

Þá er komin ný könnun vikunnar. Spurningin er einföld og svarið við henni skiptir í sjálfu sér ekki máli, heldur það að svara. Mér liggur nefnilega forvitni á að vita hvort fólk komi oft að lesa bullið í mér eða hvort þátttaka í könnun vikunnar endurspegli lesendafjölda síðunnar. Það voru sex sem tóku þátt í síðustu könnu og ég held að ég hafi verið einn þeirra. Ekki bendir það til margra lesenda. Þarf ég að fara að auglýsa? 2.maí skrifaði ég "Og ég er þess fullviss að vinkonur mína verða búnar að átta sig á þessu bloggveseni mínu áður en mánuðurinn er liðinn og að þær muni staðfesta það með kvitti í athugasemdakerfið." Ef ég dreg ályktun í samræmi við þetta þá virðist ég bara eiga eina vinkonu ... eða ein vinkona mín tekur öllum hinum langt fram í athyglisgáfu og klókindum! En mánuðurinn er jú ekki liðinn, enn eru 12 dagar til stefnu svo hinar eiga möguleika á að láta vita af sér. Talandi um það, þá stend ég mig rosalega vel í keppninni við sjálfa mig, 12 dagar eftir og bara 10 pistlar. Áfram Jökulnorn!

Könnun vikunnar - niðurstöður

Margir hafa komið víða. Borgir heimsins eru ólíkar. Við erum ólík. Hvað höfðar helst til þín? Hvaða borg þykir þér hafa mest uppá að bjóða og vera skemmtilegust? Hvert langar þig helst að fara? Roma 0% Kaupmannahofn 17% London 17% Stokkholmur 0% Tokyo 0% New York 33% Berlin 0% San Fransico 33% Paris 0% Barcelona 0%

Veðmangarinn

Það kom fáum á óvart að Sjallarnir og Fylkingin ætla í stjórnarmyndunarviðræður. Það er sem er meira spennandi er hvernig sáttmálinn sem þessir flokkar gera með sér. Það sem er mest spennandi er hvernig ráðuneytaskiptingin verður og hver sest í hvaða ráðherrastól. Mér finnst þetta svo spennandi að ég hef komið á fót veðbanka þar sem hægt að er veðja um hvernig þetta raðast. Ég segi að þetta muni skiptast á eftirfarandi máta: Forsætisráðherra = Geir Haarde Utanríkisráherra = Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Fjármálaráðherra = Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Menntamálaráðherra = Björgvin G.Sigurðsson Heilbrigðisráðherra = Jóhanna Sigurðardóttir Sjávarútvegsráðherra = Einar Kr.Guðfinnsson Landbúnaðarráðherra = Árni Matthiesen Félagsmálaráðherra = Össur Skarphéðinsson Umhverfisráðherra = Þórunn Sveinbjarnardóttir Dóms- og kirkjumálaráðherra = Sturla Böðvarsson Iðnaðar- og viðskiptaráðherra = Kristján Þór Júlíusson Samgönguráðherra = Kristján Möller Ráðuneytin skiptast til helminga, sex og sex. Samfylkingin leggur mikla áherslu á jafnréttismál og þess vegna held ég að Ingibjörg Sólrún muni leggja áherslu á að hafa þrjár konur og þrjá karla í ráðuneytunum. Ef mér skjátlast varðandi kynjaskiptinguna verður Gunnar Svavarsson félagsmálaráðherra og Össur í umhverfisráðuneytinu. Sá möguleiki er fyrir hendi að ráðuneytum verði fækkað en þá breytist þetta svo mikið að treysti mér ekki til að leggja mat á það. Hvað heldur þú?

Here Comes the Sun

Þetta lag

Haustið 1989 var mikil smölun í skátafélagið Fossbúa á Selfossi. Mamma og pabbi höfðu verið í skátunum sem ungt fólk og ég vildi vera eins svo ég dreif mig í Tryggvaskála ásamt mörgum öðrum og gekk til liðs við þessa ungu og björtu æsku landsins svo ég væri ávalt viðbúin. Eins og þið sem eruð góð í hugarreikningi eruð búin að átta ykkur á var ég 12 ára þegar ég gekk í skátana, að byrja í 6.bekk (þá ... í dag heitir það 7.bekkur). Af hverju er ég að segja ykkur frá þessu? Jú, af því að ég að setti saman lagalista á iPOD-inum mínum fallega um daginn og með laumaðist lag sem ég hafði ekki heyrt í óratíma, líklega 17 ár. Rosalega vakti þetta lag með mér sterkar minningar. Ég var lengi að ná niður hjartslættinum og gæsahúðin ætlaði aldrei að fara, tár læddist fram. Skátar, kossar, Mjólkurbúið, fiskabúr, blár varasalvi í dós, menage a troi, myrkur, Summer of ’69 og þetta lag og strákur. Fyrsti kærastinn minn. Remember yesterday - walking hand in hand Love letters in the sand - I remember you Through the sleepless nights and every endless day I'd wanna hear you say - I remember you

Unga stúlkan, ungi pilturinn og miðaldra karlmaðurinn

ung stúlka gengur arm í arm með ungum pilti í átt að Laugardalshöllinni i Laugardalnum í Reykjavík, Iceland. Þau ræða um Josh Groban. Pilturinn hefur áhyggjur af því að þau muni ekki sjá söngvarann nægilega vel úr sætum sínum. Óttast að fjarlægðin sé of mikil. Stúlkan segir áhyggjur hans óþarfar því Josh sé ekkert sætur, syngi dásamlega og þá sé nóg að heyra hann en óþarfi að sjá. Ung stúlka gengur arm í arm með miðaldra karlmanni í átt frá Laugardalshöllinni í Laugardalnum í Reykjavík, Iceland. Þau ræða Josh Groban. Stúlkan segir Josh vera orðinn sætan. Karlmaðurinn skilur ekki athugasemdina. Stúlkan áttar sig á því að hún átti fyrra samtalið við unga piltinn, ekki miðaldra karlmanninn, og útskýrir. Hún fékk gæsahúð þar sem hún sat með lokuð augun og hlustaði á röddina. Fegurð hennar breiddist út yfir andlit og líkama Josh og nú er hann orðinn sætur

Eldhúsraftækjablæti

Oh, þetta er svo flott orð! En ekki jafn flott og tækið sem ég VERÐ að bæta í safnið: Ísgerðarvél

Eldhúsraftæki

Ég á ekki örbylgjuofn. Oftast lifi ég ágætis lífi örbylgjuofnslaus. Ég á fínan bakara/steikarofn sem nýtist vel. Fyrir utan örbylgjuofna held ég samt ég þjáist af eldhúsraftækablæti. Ég á brauðrist, tvo handþeytara, blandara, risastóra matvinnsluvél með blandara á, hraðsuðuketil og ógeðslega flotta kaffibarvél sem vinnufélagarnir gáfu mér í afmælisgjöf. Hún er svo flott að ég fæ í hnén í hvert sinn sem ég horfi á hana. Sjáiði bara hvað hún er falleg!

Á milli vonar og ótta

Verð að segja að ég er á milli vonar og ótta í dag. Ég er rosalega hrædd um að það verði engar breytingar á Ríkistjórninni. Ég óttast að við sitjum uppi með stjórnmálaflokk í meirihluta sem er að niðurlotum kominn, útbrunninn og í rosalegri þörf fyrir endurnýjun og uppbyggingu frá rótum ... og það gerist ekki á meðan hann er í meirihluta. Ég vona að það verði breytingar því breytinga er þörf. Það er kominn tími til að draga úr stóriðjunni og passa uppá umhverfið og náttúruna. Ég vona að Geir Haarde og Steingrímur J.séu nógu miklir málamiðlarar til að finna grundvöll til samvinnu.

Er það vinna að vera þingmaður?

Ég hef alltaf verið soldið svag fyrir kosningum. Mamma tók náttlega mikið þátt í kosningum hér áður fyrr svo ég er soldið vön því að fylgjast með. Það er fátt jafn spennandi og spekúlasjónirnar sem fylgja nýjustu tölum. Ég fór reyndar ekki í kosningapartý í gær. Ekki mjög fjöldmennt í það minnsta. Við vorum fjögur í félagsmiðstöðinni Greniási; mamma, ég, Húni hundur og Penni köttur. Ágústa systir fór með böðnin á Selfoss til ömmu og afa þar sem var bara fyllerý. Eða eins og Steinn orðaði það: stemmingin er í maxi miðað við að meðalaldurinn í partýinu er 65 ár! Ljósin í félagsmiðstöðinni voru slökkt um eitt-leytið. Þegar ég vaknaði um kl.5 í nótt til að pissa þurfti ég að beita sjálfa mig hörðu til að standast freistinguna á að taka stöðuna. Það tókst og var spennan mikil þegar ég fór loks á fætur í morgun. Hvernig fór? Var Siv inni? Var Árni strikaður út af þingi? Náðu Vinstri Grænir markmiðum sínum? Var Ingibjörg Sólrún enn sigurvegarinn? Ég fékk niðurstöðurnar beint í æð yfir hafragrautnum. Siv inni. Samúel Örn úti. Ragnheiður Ríkarðs inni. Kiddi sleggja inni. Magnús Þór úti. Sóla frænka var ekki lengur sigurvegarinn og aumingja Framsóknarflokkurinn nær útdauður. Í aukafréttatíma Rúv kl.11 var talað við Magnús Þór Hafsteinsson. Hafi ég einhvertíma verið í vafa um hvort hann ætti heima á alþingi eða ekki þá kom hann mér á beinu brautina í þessu viðtali og staðfesti grun minn um að svo væri ekki þegar hann sagði aðspurður um hvað hann tæki sér fyrir hendur nú þegar hann hefði misst þingsætið: Þá fer ég bara að vinna. Það verður einhver að sjá fyrir þessu þjóðfélagi.

Alltaf fjölgar á Íslandi

Jana vinkona mín varð föðursystir í nótt. Hún er nú svo rík að hafa verið móðursystir í nokkur ár, en nú bættist enn einn titillinn í safnið. Til hamingju! Mamma kallaði mig dekurrófu í dag þegar hún mætti til mín með pizzu. Ég var eitthvað að væla um svengd og hún bauðst til að færa mér pizzu. Hvað átti ég að segja? Nei takk? Það gerir maður ekki þegar mamma býðst til að koma í heimsókn færandi hendi. Þá segir maður bara já takk og vaskar upp áður en hún kemur, býður kaffi og sendir hana heim með hitakaffibolla í bílinn. Ágústa systir mín ætlar að koma og keyra mig til sýslumannsins í Kópavogi svo ég geti kosið. Mér finnst betra að gera það í dag svo ég sé búin að því. Ég á erfitt með að keyra bíl og ég hef það á tilfinningunni að allir verði frekar uppteknir á morgunn svo ég ætla að nota tækifærið og láta snúast með mig í dag! Er svo góð í skipulaginu! Ég fer til Edinborgar eftir 25 daga. Eins gott ég verði orðin góð í fótunum þá!

Varúð - væl

Nú nenni ég ekki að vera voða jákvæð og eitthvað ... mér hundleiðist, er orðin þreytt á verkjum og dofa og skinbreytingum í fótunum og sterarnir eru að gera mig sturlaða. Af mörgum mögulegum aukaverkunum er ég með hækkaðan blóðþrýsing, hækkaðan blóðsykur, hækkaðan hvíldarpúls, andþyngsli og skapsveiflur. Og svo er fólk að taka þetta eitur sjálfviljugt ...

Hönk vikunnar

Myndbandið segir allt sem segja þarf! Ummhhfff!

Ný könnun

Ég ætla að hafa næstu könnun almennari. Hún snýst um ferðalög og heimsborgir.

Könnun vikunnar

Þá er vika liðin frá því að ég setti upp fyrstu Könnun vikunnar. Þátttakan hefur verið frekar dræm, einungis fimm hafa kosið. Hvað veldur spyrja sumir (aðallega ég sjálf) og ég held að svarið liggi í því að það eru ekki svo margir sem fylgjast með þessu bloggi (hvað veldur því?). Niðurstöður könnunarinnar koma mér ekki á óvart. Þeir sem þekkja Nornina vita að hún er svolítið hrifin af breskum mönnum, þá sértaklega dökkhærðum. Útkoma var sem sé svona: Clive Owen 20% Richard Armitage 0% Daniel Craig 0% Ewan McGreggor 0% Colin Firth 0% Gerard Butler 20% Allir 60% Ég veit ekki hvort ég eigi að sýna mynd af þeim sem engin atkvæði fengu eða þeim sem vann ... þ.e.a.s. öllum. Held bara öllum. Hvað finnst þér?

Vandi úr sögunni

Ég á ekki lengur í valvanda varðandi kosningarnar. Ég hef tekið ákvörðun og þarf ekki að skipta um skoðun aftur. Undanfarna daga hef ég sveiflast eins og pendúll á milli tveggja mjög svo andstæðra póla í boði fyrir komandi alþingiskosningar. Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. Já, ég veit ... mjög miklar andstæður. En ég vil og vona og óska þess heitt að þessir flokkar nái saman og verði í meirihluta á næsta þingi, saman. Ég var í vanda með hvorn flokkinn ég ætti að styðja til að svo mætti verða en er það ekki lengur. Ég var að tala við vinkonu mína í talsímanum áðan og við ræddum örlítið um hvar ætti að setja X-ið á laugardaginn. Hún opinberaði að eiga við nákvæmlega sama vanda að stríða og ég. Það vill svo heppilega til að þessi vinkona mín býr í sama kjördæmi og ég og við gerðum með okkur heiðursmannasamkomulag. Ég kýs annan flokkinn og hún hinnþ Þannig fá báðir flokkar atkvæði, annar frá mér og hinn frá henni. Þannig finnst okkur að við séum búnar að kjósa báða flokkana og höfum hreina samvisku. Málið er leyst. Góðar stundir.

Tryggingar

Ég hef gaman af auglýsingaloforðum stjórnmálaflokkanna í aðdraganda kosninga. Sá eina slíka í Ríkissjónvarpinu áðan og ótrúlegt en satt var hún frá Samfylkingunni! Eina ástæðan fyrir því að ég horfið er sú að á skjánum var ágætlega myndarlegur ungur maður, Guðmundur Steingrímsson. En þegar hann fór að tala heyrði ég bara eitthvað bull. Guðmundur talar um tryggingar í þessari auglýsingu og ber saman tryggingar við húsbruna og tryggingar við veikindum. Guðmundur tala fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hann (og þá Samfylkingin) segir að ef húsið manns brenni þá fái maður allt bætt strax af því að maður er búinn að vera að borga tryggingar af því. Svo talar Guðmundur um hvað gerist ef maður veikist. Maður er búinn að borga skatt(afborgarnir) í almannatryggingakerfið alla ævi en maður fer á biðlista ef maður veikist. Þessu vilja Guðmundur og hans félagar í Samfylkingunni breyta. Ég skil þetta þannig að þetta fólk sé að bera saman tryggingafélögin, sem eru einkafyrirtæki á hinum almenna markaði, og almannatryggingakerfi Ríkisins, sem er, jú, í eigu Ríkisins. Og þarna talar flokkur sem er mjög á móti einkavæðingu ríkiseigna að bera saman skotvirkni einkageirans og hægvirkni ríkisbáknsins. Þessu vilja þeir breyta en tala ekki um hvernig. Ætla þeir að einkavæða almannatryggingakerfið? Selja Tryggingastofnun Ríkisins hæstbjóðanda?

12.maí 2007

ganga Íslendingar til alþingiskosninga. Margir eru enn ekki búnir að ákveða hvað þeir ætla að kjósa. Nemendur í Háskólanum á Bifröst hafa útbúið stutt og létt netpróf til að hjálpa okkur með þessa ákvörðun. Ég hvet alla til að nýta sér þetta hjálpartæki. Það hjálpaði mér. Hvað á ég að kjósa?

Félagsmiðstöðin

Hver man eftir Félagsmiðstöðinni Ártúni á Selfossi? Hún var staðsett á efri hæð einbýlishúss í úthverfi Selfossborgar. Þar safnaðist oft saman hópur góðs fólks og þar var mikið skrafað og skeggrætt. Nú er búið að selja húsið og rekstraraðilar félagsmiðstöðvarinnar fluttir í aðra borg, Garðabæjarborg. Þar hafa þeir fest kaup á húsnæði sem er tilvalið til félagsmisðstöðvarreksturs og hafa þeir opnað nýja miðstöð sem hefur fengið nafnið Greniás. Starfsemi þessarar nýju stöðvar er örlítið frábrugin þeirri gömlu. Nú er húsnæðið leigt út til hópa og félagasamtaka til veisluhalds og rekstraraðilarnir taka að sér skipulag og umsjón slíkra samkoma. Rekstraraðilarnir sjá oft um að vera með skemmtiatriði eða útvega þau ef ekki er tími til undirbúnings sökum anna við masseld, sem rekstaraðilarnir eru einstaklega lagnir við. Í dag er til dæmis fjölmenn samkoma hér á vegum Rauðvínspottarklúbbsfélags Eystri hrepps í Flóa. Þá kemur saman hópur góðs fólks, neytir matar og drykkjar og nýtur smavista hvert við annað. Þessi hópur kom á langferðabíl, enda um langan veg að fara að heiman og alla leið í Garðabæjarborg. Enn er mikið skrafað og skeggrætt í félagsmiðstöð á vegum þessara rekstraraðila. Megi félagsmiðstöðin Greniás njóta jafn mikillar velsældar og mikilla vinsælda og félagsmiðstöðin Ártún gerði. Góðar stundir.

Hönk vikunnar

Við Kevin höfum verið vinir í átta ár og hann er alltaf að suða í mér að fá að vera hönk vikunnar. Úr því að hann er að hætta í Backstreet Boys þá ákvað ég að láta það eftir honum. Ég og strákarnir erum niðurbrotin yfir þessu brotthvarfi Kevins en eftir nokkra tíma hjá -ráðgjafa hefur okkur tekist að sjá Kevins hlið á málinu. Það er rétt hjá honum að hans tími með BSB er liðinn, hann þarf að fá rými til að stofna fjölskyldu og eltast við aðra drauma, semja meiri tónlist og rækta sjálfan sig. Kevin, þú hefur blessun okkar. Við munum ætíð elska þig!

Keppnin

Ég stend mig rosalega vel í þessu maraþoni, keppninni við sjálfa mig. Ef ég held áfram á sama hraða verð ég búin að ná sjálfri mér eftir um það bil 12 daga. Það lítur allt út fyrir að forsjónin hafi ákveðið að mér skildi takast þetta ætlunarverk. Hún hefur í það minnsta hagað málum þannig að ég er óvinnufær og hef allan heimsins tíma til að sitja með tölvuna í kjöltunni, veltast á netinu og setja hugleiðingar mínar á blað (blogg). Læknirinn ætlar sem sagt að láta sprauta mig. Við tókum þá sameiginlegu ákvörðun eftir að hafa vegið og metið kosti og galla beggja sprautustaða (LSH-Fossvogi vs. ST.Jó) að LSH væri betri, ég kæmist fyrr að það. Það verður vonandi strax á mánudag. Þið getið sem sagt gengið að mér vísri hér í sófanum í Hamraborginni að kurra með Pétri og Símoni eða að horfa á kvikmyndir á sjónvarpsskjá, þar sem einhverjum að upptöldum fegurðarkonungum bregður fyrir með stuttu en reglulegu millibili. Góðar stundir.

Robbie

Þegar ég kveikti á fallega eldhúsútvarpinu mínu í morgun var verið að spila lagið She's Madonna með Robbie Williams. Ég kýs að flokka það sem allt er þá þrennt er því að í gær, án þess að það væri ætlunin og án þess að átta mig á því sérstaklega fyrr en í morgun, vitnaði ég í Robbie í tveimur færslum. Getraun dagsins er hvaða frasar voru þetta og úr hvaða lögum? Æm off tú sí ðe doktor ... træ nott tú miss mí væl æm gonn!

Stalkers day off

Ég er rosalega lélegur stalker mar. Það er ekki ónýtt að eiga svona vinkonur eins og Ingu og Guggu. Ég kalla og þær koma og bjarga mér alveg. Gugga fór á Subway og náði í tvo tólf tommu og kom við á myndbandaleigunni og tók Scoop, nýjustu Woody Allen-myndina. Hún þekkir mig svo vel því hún hringdi af leigunni og spurði: Hvor finnst þér æðislegri, Clive Owen eða Hugh Jackman? Myndin með Hugh endaði í spilaranum því ég var búin að sjá þessa með Clive. Svo kom Inga, fersk eins og nýútsprungin rós eftir gönguferð og svaml í heitum potti umkringd ofurmyndarlegum útlendum karlmönnum sem töluðu framandi tungumál en svipaði mjög til Ítala. Við sátum í allt kvöld og töluðum um fallega karla. Hugh til dæmis er svo sætur (and quite tall, 189 cm) að hann fær eitt og hálft ummhhhfff. Sá eini sem fær þrjú og allir aðrir eru miðaðir við (í mínum huga í það minnsta) er Gerry. Gerry er guðdómlegur. Hann er Skoti, fæddur í Glasgow. Græneygður. Ó só bjútýfúl. En ég er ekki mjög góður stalker, ég vissi ekki einu sinni hvað hann var hár, né heldur hvernær hann á afmæli, hvað hann er gamall, hvort hann á börn eða konu (not that I care). Nú veit ég þetta allt. Hann er 188 sm á hæð, dökkhærður (farinn að grána pínu í vöngum og það gerir hann bara meira sexý), á sama afmælisdag og mamma mín en fæddur 12 árum á eftir henni. Ummhhfff, ummhhfff, ummhhfff, umhf!!!

Svengd

Ef þú átt leið í Kópavoginn máttu alveg koma við á einhverjum skyndibitastaðnum, krækja í eitthvað að maula og færa mér þar sem ég á frekar erfitt með að færa mig á milli staða þessa stundina. KFC, Subway, American Style ... bara ekki Domino's.

Yfirmenn

Ég reifst við yfirmanninn minn í dag. Ég bókstaflega sagði honum að ég treysti honum ekki til að vinna vinnuna sína og þess vegna væri ég í vinnunni minni svona á mig komin. Hef aldrei séð manninn eins reiðan. Það merkilega er að ég fékk ekki hnút í magann yfir þessu, ekki grunna öndun, ekki munnþurr og ekki móral. Hver hefði trúað því??? You're a good lad Robbie, good lad!

Dancersizing

Þessir félagar eru snillingar! Nálastungufræðingurinn minn setti mér það heimaverkefni fyrir um daginn að komast að því hvað nærir mig, andlega, sálarlega, í hjartanu (ég nefnilega er með það alveg á hreinu hvað nærir mig líkamlega og það er ekki hvítt hveiti, lakkrís eða ostur skal ég segja ykkkur). Ég braut heilann lengi yfir þessu og komst loks að niðurstöðu. Það er dans. Að dansa gefur mér ofsalega mikið, endurnærir mig á líkama og sál. Þess vegna ætla ég að taka upp Dansersizing sem líkamsrækt. Það sameinar tvennt mikilvægt. Hreyfingu og andlega næringu. Þess vegna skuluð þið ekki láta ukkur bregða ef þið sjáið mig iða takktfast og smekklega næst þegar þið hittið mig! Góðar stundir.

Lattnirinn

Á ég að sprauta honum? Ég náði loksins sambandi við lækninn minn eftir hádegi í dag (búin að reyna síðan í gærmorgun). Það eru ekki allir með svona umhyggjusaman lækni sem ég. Hann hringdi í morgun. Ég var þá stödd í vinnunni og hafði auk þess gleymt símtækinu heim hjá mér svo ekkert varð úr samræðum okkar í það skiptið. Af þessum lækni fer það orðspor að vera mjög umhyggjusamur og duglegur, ákveðinn og fylginn sér. Hann staðfesti það í dag á tvennan máta. Fyrst skildi hann farsímanúmer sitt eftir á talhólfinu hjá mér og svo þegar við ræddum saman tók hann snögglega af skarið, ætlar að hitta mig strax í fyrramálið og skoða mig, að því loknu munum við taka ákvörðun um hvort ég fari á Landspítalann-Háskólasjúkrahús í Fossvogi (gamla Borgarspítalann) eða á St.Jósefsspítala í Hafnarfirði. Á hvorn spítalann ég fer veltur allt á tveimur atriðum í raun. Betri kosturinn er að sjálf sögðu LSH en þar er mannekkla vegna veikinda starfsfólks svo við verðum að skoða möguleikann að fara á St.Jósefsspítala þar sem þjónustan er ekki nánda nærri eins góð og á LSH. Hitt er að það er mjög líklega pláss fyrir mig á St.Jó strax! Sem er gott. Ég held að þegar til kastanna komi muni valið liggja hjá mér og þá verð ég að viðurkenna að ég hef góða reynslu af LSH en ST.J. hefur rómantískan blæ í huga mínum og ég sé fyrir mér að þar muni ég hitta myndalega lækna á borð við Dr.Drake Ramorey í Days of our lifes og Dr.McSteamy úr Grey's anatomy. Það er nú áhættunnar virði ekki rétt?

Loforð

Eitt af því sem ég lofa að setja ekki fleiri en 3 færslur af í þessari keppni við sjálfa mig eru netpróf. Á ég að skýra þetta frekar? Ég áskil mér rétt til að ræða netpróf á heimspekilegan hátt og ég má taka slík próf, jafnvel ræða niðurstöður þeirra sérstaklega, en ég má ekki (undir neinum kringumstæðum) birta niðurstöður fleiri en þriggja slíkra prófa og þau þurfa að vera annað hvort mjög gáfuleg eða ótrúlega heimskuleg.

YouTube

Það er með YouTube eins og ný orð sem ég læri ... ég þarf að nota þau oft og mikið til að byrja með. Mér finnst svo mikil snild að geta límt myndbönd af YouTube inn á bloggi mitt. Þess vegna er soldið af því hér. Ég hef sett mér þá stefnu að þau myndbönd sem ég set inn hér verða eingöngu tónlistarmyndbönd sem endurspegla minn smekk, sýna hvað ég hlusta á, hvort sem er yfirleitt eða þessa dagana. Ég hef aldrei og mun aldrei fara í grafgötur með það að ég elska popptónlist. Ég játa, ég játa, æm a poppódog!

Kepppni

Ég aðgang að tveimur netdagbókum(verð að finna betra orð fyrir "blogg", hugmyndir einhver???). Önnur hefur verði til síðan í September 2005 held ég, hin frá því í Janúar á þessu ári. Nú ætla ég í keppni. Það hafa verið settar inn 239 færslur á eldri síðuna en ætli þetta sé ekki tíunda færslan á þessa. Smá reikningsdæmi. Eldri síðan: 239 færslur á 20 mánuðum gera um það bil 12 færslur á mánuði (ef hugarreikningsfærnin bregst mér ekki núna). Þessi síða: 10 færslur á 4 mánuðum dreyfist í 2,5 færslur á mánuði (ekki rétt?) Hvað þarf ég að skrifa marga pislta til að ná eldri síðunni? Ég þarf að skrifa 40 færslur í þessum mánuði ef ég ætla að ná því. Get ég það kæru lesendur? Þetta merkir að ég þarf að setja eitthvað hér rúmlega einu sinni á dag, nánast tæplega tvisvar. Ég er ekki mjög afkastamikill bloggari og þaðan af síður hugmyndaríkur. En ég mun gera mitt besta. Og ég er þess fullviss að vinkonur mína verða búnar að átta sig á þessu bloggveseni mínu áður en mánuðurinn er liðinn og að þær muni staðfesta það með kvitti í athugasemdakerfið. Jenný, ég veit að þú veist svo þú þarft ekki að setja athugasemd nema þú viljir :) Til hamingju með vörnina beibí og góða skemmtun með mömmu og systu í New York!

Yuppie? Yukkie!

What type of person do you attract?
Your Result: You attract Yuppies!

You attract the very well-dressed, job oriented type of people. They usually have their finances together, are 'middle of the road' on most topics, generally happy with the 'main-stream' of things. If it is stability you are after, these are good people to attract, if you seek adventure, it may be time for an overhaul.

You attract geeks!
You attract artsy people!
You attract models!
You attract unstable people!
You attract rednecks!
What type of person do you attract?
Quizzes for MySpace
Segir þetta ekki meira um mig en ég kæri mig um að vita?