Commodores - Nightshift

Þetta lag er frábært. Myndbandið er dásemd. Pop Vocal rúlar bigtime!!!

VH1 Top 20 greatest videos of all tilme

Líf manns skiptist í tímabil. Sum eru betri en önnur, sum verri. Um sum má jafnvel segja it was the best of times, it was the worst of times. Gildir einu hvort við skiptum tímabilunum niður eftir því hvað við vorum gömul, í hvaða skóla við vorum, hvaða flokkar voru í ríkisstjórn eða hvaða tískufyrirbæri við eltumst við. Eitt af þessum tímabilum í mínu lífi var þegar ég bjó með systur minni á Hagamel. Það var gott tímabil. Kannski ljúfsárt. Tregablandið. Enduminningunni fylgir í það minnsta alltaf svolítið eftirsjá og nostalgía. Ég held að það sé bara systir mín sem skilur hversu mikil gleði fylgdi því að horfa á þennan sjónvarpsþátt um daginn. Og hún er ein um að skilja húmorinn sem fylgir þessari upptalningu. Pop up, pop up video! VH1 Top 20 greatest videoes of all time: nr.6 AHa - Take on me - Blanda af teiknimyndasögu og leiknum myndbrotum. Morten er hetjan í sögu sem stelpan (sem er í ömurlegri vinnu á dæner) les og dettur svo inní. nr.5 Duran Duran - Hungry like the wolf. Þetta var ekki eina myndbandið sem þeir félagar áttu á listanum, enda miklir frumkvöðlar í bransanum. Girls on film var einhvers staðar líka, ég man bara ekki nr.hvað. nr.4 Def Leppard - Pour some sugar on me. Dásamlega mikið barn síns tíma. Þarna eru klippt saman myndbrot ur upptökum af tónleikum með töffurunum sem voru uppá sitt besta á metarock tímanum, allir með sítt hár og perm í spandex og með rafmagnstrommur. nr.3 Bon Jovi - Wanted dead or alive. Big hair, lots of spandex, leðurjakkar með indjánakögri, myndskeiðin tekin upp á tónleikaferðalagi þeirra félaga í svarthvítu. nr.2 Billie Idol - Cradle of love. Ofboðslega flott myndband - conseptið soldið á gráa svæðinu. Unglingsstúlka sem dansar ögrandi í þunnum sokkabuxum og stuttu pilsi heima hjá miðaldra manni sem fer að dreyma ókristilega um stúlkuna. Í anda níunda áratugarins, svart, hvítt, rautt, grátt, rimlagluggatjöld og skugginn af þeim sem varpast á rúmið. nr.1 9 inch nails - Closer. Rosalega groteskt vídeó. Það virðist hafa komið tímabil þar sem leikstjórarnir gerðu sér það að leik að reyna að "skemma" filmuna til að ná fram einhverju séráhrifum. Í þessu tilfelli var filman sett í baðkarið og á hana helt kaffi og sítrónusafa og hún svo burstuð með uppþvottabursta. Afleiðingarnar þær að litirnir eru bjagaði og mikið af rispum. Green day áttu líka myndband á listanum, einnig INXS, Eurythmics, Garbage (sama meðferð á filmu og hjá 9 inch neils), Blind Mellon og Tom Petty svo einhverjir séu nefndir. Guns'n roses áttu 3 myndbönd á listanum

Páskaleyfið

Innkaupalisti: 21 stk. hjá Victoria's Secret - það stærsta sem er til er ekki nógu stórt á mig! Gallabuxur - 2 stk. Flatbotna skór - nei Snyrtidót - já, aðallega MAC Hársápa - Brunett Godess með þokkalega þungum og þykkum karamelluylmi iPOD (spilastokkur) - ógili flottan, rauðan Stafræn myndavél - jebb, myndin hér að neðan því til staðfestingar Að-sjá og skoða-listi: Strákar - já, en lítið í þá varið - nema The Naked Cowboy á Time Squere Empire State-byggingin - vísa aftur í myndina hér að neðan Frelsisstyttan - hún er nú ósköp lítil greyjið Miðgarður - yndislegur, fullur af íkornum Litla Ítalía - hef séð þokkalegan hluta af þessari stóru svo ég var ekkert að eyða tíma í þá litlu Soho - og Noho Stjörnudollarar - skil ekki hvað fólk mærir þessar búllur, það er ekkert varið í kaffið þarna Strákar - alltof stórar og alltof hvítar tennur, maður fær bara ofbirtu í augun Við erum leikföng - ég varð hrædd þegar risaeðlan orgaði Fimmta breiðstræti - og Broadway og 52nd street, Herrald square, Union squere, Time squere og margt fleira Núll-punktur - kom mér á óvart hvað ég var snortin, en er ekki sammála því að kalla fórnarlömbin hetjur Strákar - mest varið í þessa í sjónvarpinu, þeir fá nefnilega ekki að klæða sig sjálfir

NYC frá Empire State