Welcome to the Big Appel
Innkaupalisti:
21 stk. hjá Victoria's Secret
Gallabuxur
Flatbotna skór
Snyrtidót
Hársápa
iPOD (spilastokkur)
Stafræn myndavél
Að-sjá og skoða-listi:
Strákar
Empire State-byggingin
Frelsisstyttan
Miðgarður
Litla Ítalía
Soho
Stjörnudollarar
Strákar
Við erum leikföng
Fimmta breiðstræti
Núll-punktur
Strákar
BackStreet Boys-Quit playing games (With my heart)
Bryan - allir - Nick - allir - A.J. - Bryan - allir Aðalheiður systurdóttir mín kann öll BsB lögin svona. Hún er heitasti aðdáandi þeirra á Íslandi undir þrítugu - ég yfir þrítugu. Saman erum við ósigrandi.
Hönk vikunnar
Humm ... hönk vikunnar að þessu sinni kom eins og fljúgandi rýtingur inn í líf mitt fyrir tilstilli Haraldar vinar míns á bókasafninu. Þessi maður, Takeshi Kaneshiro, er ótrúlega fallegur. Hann verður 34 ára í október. Hálfur Kínverji og hálfur Japani, býr í Tokyo og er mjög laginn við að halda einkalífi sínu utan sviðsljóssins, menn vita ekki einu sinni hvort hann eigi konu eða börn. Njóttu!!!
